Innlent

Sveiflaði eggvopnum í Breiðholti

Maður, vopnaður tveim eggvopnum, var handtekinn í Breiðholti í dag, eftir að hafa reynt þar innbrot og veifað vopnum sínum að nálægu fólki. Íbúi í Fellahverfi, sem fréttastofan ræddi við, sagði að lögreglumenn hefðu verið eldsnöggir á vettvang og fundið manninn eftir skamma leit, en hann var þá kominn inn í íbúð í hverfinu, þar sem hann mun eiga sér afdrep. Þetta mun ekki vera í fyrsta skipti sem lögreglan hefur afskipti af þessum manni fyrir að fara um með eggvopn. Fyrrnefndur íbúi sagðist ekkert hafa undan lögreglunni að kvarta, hún hefði brugðist hratt og vel við. Hins vegar fyndist sér ekki gott að lögreglan yrði að sleppa þessum mönnum strax aftur, eftir að þeir hefðu játað brot sín. Honum fannst að dómsmálayfirvöld ættu að beita einhverjum ráðum til þess að taka fólk úr umferð, sem væri hættulegt umhverfi sínu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×