Auðkífingur veiðir lunda 5. júlí 2004 00:01
Dularfullur rússneskur auðkýfingur, sem hér er á ferð, sparaði sér klifrið upp í Bjarnarey, þegar hann hélt þangað til lundaveiða í fyrradag, og lét þyrlu flytja sig og fylgdarlið sitt út í eyna. Þar náði hann að veiða nokkra lunda í soðið áður en þyrlan sótti þá aftur, og lenti við Höfðaból í Eyjum. Þar var lundinn matreiddur og snæddur að hætti Eyjamanna. Heimamenn telja að það hafi verið dýrasta lundaveisla sögunnar. Síðan var gist í Höfðabóli, en Árni Johnsen, húsbóndi þar, vildi ekkert tjá sig um rússann eða ferðir hans, þegar fréttastofan leitaði eftir því. Rússinn og hans menn eru enn á ferðinni og nú í leiðangri á ofurjeppum uppi á hálendi, eftir því sem Fréttastofan kemst næst. Ætlunin er að fara annað hvort í flúðasiglingar eða upp á jökul, en fyrirtækið sem sér um ferðir hans á fastalandinu, er líka þögult sem gröfin um rússann, nema hvað hann er viðskiptajöfur og víða þekktur sem slíkur. Á Reykjavíkurflugvelli bíður hans svo Gulfstream einkaþota af stærstu gerð, með flugmenn í viðbragðsstöðu.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira