Fá 260 milljónir fyrir hitaveituna 30. júní 2004 00:01
Minnihluti bæjarstjórnar segir upphæðina ekki réttlæta söluna. Fjölmörg vafamál séu ekki afgreidd í samningnum. Forseti bæjarstjórnar segir söluna gríðarlegan kost fyrir bæjarbúa og verðið ásættanlegt. Meirihlutinn felldi tillögu minnihlutans um borgarafund. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarfulltrúi Hveragerðis, segir ótrúlegt að meirihlutinn hafi fellt tillögu um að málið yrði kynnt bæjarbúum. "Íbúalýðræði er skrumskæling á orðinu ef við ætlum ekki að taka fyrir málefni sem skipta verulegu máli. Þessi höfnun á borgarafundinum og höfnum á kynningu á samningnum áður en hann er samþykktur er forkastanleg." Þorsteinn Hjartarson, forseti bæjarstjórnar, staðfestir að ekki standi til að kynna íbúum samninginn sérstaklega heldur verði það gert á fundi með öðrum málum í haust. Margir hafi þó haft samband við bæjarstjórnina og komið þannig að málinu. "Það er ekki búið að ganga endanlega frá þessu eða skrifa undir. Þannig að það er alltaf möguleiki að setja eitthvað inn í samninginn sem vantar," segir Þorsteinn. Aldís segir minnihlutann benda á mörg óljós atriði. "Í samningnum við Orkuveituna er þeim veittur einkaréttur á sölu á heitu vatni í Hveragerði. Hér eru þrjár einkahitaveitur sem einstaklingar eiga. Hvernig lýtur þetta að þeim þegar bæjarstjórn er búin að veita Orkuveitunni einkarétt á sölu á heitu vatni?" Þorsteinn segir einkaleyfi Orkuveitunnar verða það sama og Hitaveitan hafi haft. Rætt verði um þau atriði sem minnihlutinn lagði fyrir. "Vissulega er til í dæminu að við munum hnykkja á slíkum atriðum. Annað hvort í samningnum, með viðauka eða sérstökum bókunum." Seinni umræða samningsins verður 15. júlí. Orkuveita Reykjavíkur greiðir 260 milljónir fyrir Hitaveitu Hveragerðis samkvæmt samningi. Minnihluti bæjarstjórnar segir upphæðina of litla til að réttæta söluna. Samningurinn verði samþykktur eftir hálfan mánuð, þvert á vilja minnihlutans og án kynningar fyrir bæjarbúa. Meirihluti bæjarstjórnar Hveragerðis kynnti kaupsamninginn í fyrri umræðu á bæjarstjórnarfundi á þriðjudag.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira