Hugsanlega sæst á skilyrði um 1/3 30. júní 2004 00:01
Enn á ný standa stjórnarflokkarnir frammi fyrir því að þurfa að ná lendingu í stórmáli sem flokkarnir eru í aðalatriðum ósammála um. Nú eru það lög um þjóðaratkvæðagreiðslu. Líklegt þykir að flokkarnir sættist á skilyrði um þriðjung. Sjálfstæðismenn sögðust hlynntir því að setja mörkin við "það minnsta 44%" ef vitnað er í ummæli Björns Bjarnasonar dómsmálaráðherra við Fréttablaðið. Geir H. Haarde fjármálaráðherra og Einar K. Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sögðust í fjölmiðlum ekki sjá neitt athugavert við efri mörkin, þau mættu jafnvel vera enn hærri og nefndu 50% í því samhengi. Framsóknarmenn voru hins vegar á öðru máli. Viðmælendur Fréttablaðsins innan þingflokksins voru ýmist á því að setja ætti engin takmörk eða að takmörkin ættu að vera eins lág og mögulegt væri, sem allra næst neðri mörkunum. Sögðust þeir sannfærðir um að Framsóknarflokkurinn myndi aldrei sættast á efri mörkin þrátt fyrir það sem sjálfstæðismenn hefðu lýst yfir opinberlega. Formennirnir í útlöndumFormenn flokkanna, Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson, hafa báðir verið staddir erlendis undanfarna daga. Því hafa þingflokkarnir ekki enn hist og rætt málið, en að sögn Hjálmars Ragnarssonar, þingflokksformanns Framsóknarflokksins, mun þingflokkur framsóknarmanna hittast í dag eða á morgun og ræða skýrsluna. Einar K. Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, sagði við Fréttablaðið að ekki væri útilokað að þingflokkurinn hittist nú fyrir helgi. Davíð Oddsson hefur ekkert tjáð sig opinberlega um málið en Halldór Ásgrímsson sagði við Fréttablaðið, daginn sem skýrslan kom út, að framsóknarmenn hefðu ekki tekið ákvörðun um hvaða mörk ætti að setja. Þingmenn Framsóknarflokksins sem Fréttablaðið ræddi við sögðu að það kæmi sér ekki á óvart ef sammælst væri um að skilyrði yrði sett í lög um þjóðaratkvæðagreiðslu sem segði að þriðjungur kosningabærra manna þurfi að greiða atkvæði gegn lögum eigi þau að falla úr gildi. Framsókn bíður formannsinsAðeins einn þingmaður Framsóknarflokksins hefur tjáð sig opinberlega um skýrslu starfshópsins að undanskildum formanninum. Var það Kristinn H. Gunnarsson, eini stjórnarliðinn sem greiddi atkvæði gegn fjölmiðlafrumvarpinu. Sagðist Kristinn eindregið á móti því að sett yrðu nokkur mörk. Fréttablaðið hafði samband við flesta ráðherra flokksins og þónokkra þingmenn eftir að skýrslan kom út. Vildi enginn þeirra segja neitt opinberlega um málið og var skýringin sú að formaðurinn væri ekki á landinu, flokkurinn hefði ekki rætt um þetta sín á milli og því gætu þeir ekkert sagt. Heimkomu formannsins er því beðið og mun afstaða framsóknarmanna ekki koma endanlega í ljós fyrr en hann hefur lagt flokksmönnum línurnar í málinu. Stjórnarandstaðan á móti skilyrðumÞingmenn stjórnarandstöðuflokkanna hafa lýst því yfir að þeir séu alfarið á móti nokkrum skilyrðum um þátttöku eða atkvæðavægi í þjóðaratkvæðagreiðslu. Því er ljóst að hart verður tekist á á Alþingi þegar það kemur saman á mánudaginn og rætt verður um frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslu sem nú er verið að semja í forsætisráðuneytinu. Forsætisráðherra gaf forsmekkinn af því sem í vændum er á svokölluðum samráðsfundi formanna þingflokkanna 8. júní þegar hann rak formenn stjórnarandstöðuflokkanna á dyr eftir fimmtán mínútna fund. Gerði hann það fyrirvaralaust eftir að formennirnir lýstu yfir einróma andstöðu við að setja nokkur takmörk um þátttöku eða atkvæðavægi í lög um þjóðaratkvæðagreiðslu. Davíð lýsti því yfir eftir fundinn að formennirnir hefðu hótað málþófi á Alþingi þegar ræða ætti lögin. Það mun koma í ljós í næstu viku hversu mikil og löng andstaðan verður. Enn á ný standa stjórnarflokkarnir frammi fyrir því að þurfa að ná lendingu í stórmáli sem flokkarnir eru í aðalatriðum ósammála um. Nú eru það lög um þjóðaratkvæðagreiðslu. Um leið og skýrsla starfshóps ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu var birt á þriðjudag tjáðu þingmenn stjórnarflokkanna sig um hugmyndir starfshópsins um að setja í lög skilyrði um að 25-44% atkvæðisbærra manna þyrftu að greiða atkvæði gegn lögum svo þau falli úr gildi.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Innlent „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ Innlent John Alford fannst látinn í fangelsinu Erlent Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Innlent Rúta út af og Þingvallavegi lokað Innlent Hellisheiði er lokuð Innlent Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Innlent Hóta að svipta fjölmiðla leyfinu vegna umfjöllunar um stríðið Erlent Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Innlent Líbanon viðurkenni Ísrael sem ríki Erlent Fleiri fréttir Þrír fluttir á slysadeild ofan af Hellisheiðinni eftir tvo árekstra Afturkölluð tilnefning grunsamlegri eftir misvísandi svör Rúta út af og Þingvallavegi lokað Tvö snjóflóð skammt frá byggð í Siglufirði Galdrakarlinn í AUS Rammagerðin fari með fleipur í fjölmiðlum og beri sjálf ábyrgð á stöðunni Stærðar alda skolaði grjóti yfir bílaplanið við Reynisfjöru Stakar styrkveitingar taldar með í upptökutölfræðinni Hellisheiði er lokuð „Skapaði mikla ringulreið hjá okkur og við erum hrædd“ „Við erum ekki hrædd“ Vilja rauðvín á föstudögum á Selfossi Ferðalangar í vandræðum víða um land vegna færðar Uppnám á flugvellinum og fyrsti kvenkyns keppandinn Handtekinn á sjöunda tímanum í gær grunaður um ölvunarakstur Stríð, þjóðaratkvæðagreiðsla og stafræn heilbrigðisþjónusta „Hann var sagður heimskur, ljótur og að enginn annar gæti elskað hann“ Snjóflóð þveraði veginn þegar opið var fyrir umferð Nemendur MR afhentu rektor undirskriftalista Reyndu að vísa manninum í burtu en það gekk ekki Vildu helst Asíubúa í flug til Grænlands Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Sjá meira