Innlent

Davíð fundar með Bush

Davíð Oddsson forsætisráðherra væntir þess að niðurstaða geti fengist um framtíð Keflavíkurstöðvarinnar á fundi með George Bush í Hvíta húsinu á þriðjudaginn kemur. Bandaríkjaforseti býður til fundarins, en á honum á að ræða um alþjóðamál og samskipti landanna. Davíð segir fundinn í Washington engin áhrif hafa á fyrirhugaða fundi Alþingis á sama tíma.Davíð segir að ósk hafi borist frá Hvíta húsinu um að stefna að fundi í júlímánuði þegar hann var á ferð um Bandaríkin á dögunum en endanleg ákvörðun um dagsetningu hafi verið tekin fyrir fáeinum dögum. Davíð taldi víst að Keflavíkurstöin yrði eitt aðal umræðuefni fundarins. Enda teldi hann mikilvægt að létta óvissu um það efni. Davíð telur að niðurstaða geti fengist um framtíð varnarstöðvarinnar. Hann segir að ef þeir nálgist lausnina taki aðrir ráðherrar við að sjá um að útfæra þá niðurstöðu. Hann segist þó vænta þess þar sem forsetinn boði til þessa fundar að þeir ættu að nálgast niðurstöðuna en hann vill þó ekki fullyrða um það. Davíð segist vera hólega bjartsýnn, enda hafi vel farið á með honum og Bush þegar þeir spjölluðu óformlega saman í Istanbúl. Þetta verður fyrsti fundur sem Davíð á með Bandaríkjaforseta á skrifstofu hans í Hvíta húsinu, en Davíð hitti Clinton forseta tvisvar í Hvíta húsinu á hátíðarfundum. Þá átti Davíð fund með Bush eldri þegar hann var forseti á skrifstofu í New York. Daginn áður en fundur Davíðs og Bush verður í Washington kemur Alþingi saman til að setja lög um þjóðaratkvæðagreiðslu. Davíð segir fundinn ekki hafa áhrif á störf þingsins. Það hafi oft komið fyrir að forsætisráðherra hafi þurft að bregða sér af bæ.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×