Andstaðan með eigið frumvarp 30. júní 2004 00:01
Stjórnarandstaðan ætlar að leggja fram frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðsluna um fjölmiðlalögin. Samkvæmt því á einfaldur meirihluti að duga til þess að hafna lögunum. Formaður Samfylkingarinnar segir að ríkisstjórnin sé hrædd við vilja fólksins í landinu. Frumvarp Samfylkingarinnar, Vinstri grænna og Frjálslynda flokksins um þjóðaratkvæðagreiðsluna hefur verið í vinnslu að undanförnu og hafa forystumenn flokkanna leitað fanga víða. Formenn flokkanna ætla að hittast á sérstökum samráðsfundi klukkan níu í fyrramálið og verður stefnt að því að kynna frumvarpið áður en þing kemur saman að nýju á mánudag. Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri grænna, segir að stjórnarandstaðan sé við öllu búin, þar sem ríkisstjórnarflokkarnir hafi dregið málið, og hann gagnrýnir Framsóknarflokkinn fyrir að ætla að hoppa út í enn eitt kviksyndið með íhaldinu. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, segir að því miður hafi ríkisstjórnin ekki viljað taka í útrétta sáttahönd stjórnarandstöðunnar. Hann segir stjórnarandstöðuna ætla að standa saman að frumvarpi þar sem framkvæmd þjóðaratkvæðagreiðslunnar sé útfærð. Þar sé lögð áhersla á að engar girðingar eða þröskuldar séu settir. Að það verði einfaldur meirihluti þeirra sem taki þátt sem ráði. Andstaðan sé raunar á því að stjórnarskráin leyfi ekk annað. Össur segir að æskilegast hefði verið að ríkisstjórn og stjórnarandstaðan næðu saman um málið, ekki síst í ljósi þess vafa sem felst í því að setja girðingar á atkvæðagreiðsluna. Hann segir ekki hægt að setja lög sem með einhverjum hætti takmarki rétt manna til að ráða niðurstöðum. Hugmyndir sem hafi komið frá ýmsum ráðherrum um það séu fráleitar. Össur er helst á því að ráðamenn séu hræddir við vilja fólksins.
Fréttir Innlent Mest lesið Íranir ráðast á herstöð Bandaríkjamanna í Katar Erlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Innlent „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Innlent Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Kona féll í Svöðufoss Innlent Tuttugu og tveir látnir eftir sjálfsmorðsárás í kirkju Erlent Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Innlent Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Innlent Fleiri fréttir Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Álftapar með fjóra unga við Hótel Rangá vekur athygli Sagt að hann gæti ekki klárað námið en gerði það samt Bíll við bíl frá Ártúnsbrekku upp í Mosfellsbæ Sjá meira