Innlent

Grásleppukarlar fagna

Grásleppukarlar um allan heim, eða þar sem þessar veiðar eru á annað borð stundaðar, fagna aldrei þessu vant tvöfalt. Annars vegar hefur veiðin sjaldan verið betri, ekki aðeins hér við land, heldur líka við Nýfundnaland og við Noreg. Við slíkar aðstæður hefur jafnan orðið verðfall vegna offramboðs, en nú bregður svo við, samkvæmt upplýsingum Landssambands smábátaeigenda, að upphafsverðið á heimsmarkaði frá í vor hefur haldið sér, þrátt fyrir mikinn afla. Þetta má líklega rekja til þess að óvenju litlar birgðir voru til af grásleppuhrognum við upphaf vertíðarinnar í ár.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×