Innlent

Ekkert bendir til vélarbilunar

Ekkert bendir enn til þess að vélarbilun hafi orðið til þess að Dornier-flugvél Íslandsflugs magalenti á flugvellinum á Siglufirði síðastliðinn þriðjudag að sögn Þormóðs Þormóðssonar rannsóknarstjóra. Tveir flugmenn voru í vélinni og sakaði ekki. Að sögn Þormóðs er rannsókn langt komin. Búið er að taka vitnisburð af flugmönnum vélarinnar og verið er að lesa gögn úr flugrita vélarinnar í Englandi. Of snemmt er þó að segja til um orsök slyssins að sögn Þormóðs.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×