Missti sextán ára son í bílslysi 29. júní 2004 00:01 "
Ég hef bæði misst foreldra og bróður en þetta er eitthvað sem ekki er hægt að lýsa. Veröldin hrundi," segir Lárus Kjartansson, lögreglumaður sem missti son sinn, Magnús Örlyg, í umferðarslysi skammt frá Nesjavallavirkjun árið 1996. Sonur Lárusar fór með vini sínum og foreldrum hans í sumarbústað. Þeir vinirnir voru sextán ára, báðir próflausir og fóru út að keyra á bíl foreldra vinarins þegar slysið varð. "Sonur minn var farþegi. Það sem bjargaði ökumanninum var að hann var í bílbelti en sonur minn ekki. Þeir óku eftir sveitavegi og voru að fara á milli hliða. Strákurinn minn hafði farið út til að opna fremra hliðið og nokkrir kílómetrar voru í það næsta. Bílnum hefur verið ekið nokkuð greitt því hann hafði oltið töluvert og kastast mikið til," segir Lárus. Lárus segir fyrsta mánuðinn eftir slysið hafa verið eins og í móðu og hann muni ósköp lítið eftir þeim tíma. "Maður á aldrei von á að verða fyrir því að missa barnið sitt. Ekki löngu áður vorum við að tala um dauðann. Ég sagði honum að hann ætti að sjá til þess að lagið Fylgd yrði spilað yfir mér. Hann sagði að við vissum ekki hver færi á undan. Ég svaraði að auðvitað myndi ég deyja á undan og fannst það eðlilegt, en skömmu síðar dó hann blessaður kúturinn." Lárus segir að þó átta ár séu síðan slysið varð sé alltaf jafn erfitt að tala um þetta. Sorgin og söknuðurinn komi alltaf upp í hugann.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira