Kostnaður við hvern nema eykst 29. júní 2004 00:01
Gert er ráð fyrir að kostnaður á hvern framhaldskólanema í dagskóla verði 563 þúsund í ár. Hann hækkar um 48 þúsund frá því í fyrra. Frá árinu 2000 hefur kostnaðurinn hækkað um 198 þúsund krónur á hvern nemenda, eða um tæplega 43 prósent, samkvæmt tölum frá menntamálaráðuneytinu. Einar Oddur Kristjánsson, varaformaður fjárlaganefndar, segir vaxandi kostnað í opinberum rekstri mikið vandamál sem við þurfi að stríða og sporna gegn. "Við trúðum því statt og stöðugt í endaðan nóvember þegar við hækkuðum fjárveitingar til framhaldskólanna um 600 milljónir að það væri sannarlega nóg. Okkur er tjáð að núna séu umsóknirnar fleiri og meiri en nokkru sinni fyrr og hærra hlutfall árgangsins en nokkurntímann fyrr. Við höfum enga stöðu til að sanna það en við vitum að fjármálaráðherra er að skoða þetta núna." Steingrímur Sigurgeirsson aðstoðarmaður menntamálaráðherra segir fjárúthlutun til framhaldskólanna fara eftir reiknilíkani og tveir þættir ráði hækkuninni. "Annars vegar verðlagshækkanir á þessum þáttum sem reiknilíkanið tekur til og síðan þessi hækkun á framlögum til verknáms." Ingibjörg Guðmundsdóttir, formaður framhaldskólanna, segir ljóst að nýir kostnaðarliðir hafi myndast á síðust árum. "Við erum með svokallað framhaldskólanet, þar sem allir framhaldskólarnir eru tengdir saman. Þar er mikill kostnaður sem leggst á rekstur skólanna. Eins nemendaforritið, Inna, sem allt bókhaldið í kringum nemendurna er í." Ingibjörg nefnir einnig kostnað við tölvukerfin og umsjónamenn þeirra. Hún segir einnig að launahækkanir hafi verið þrjú prósent og að vísitalan hafi hækkað. "En ég get ekki sagt hvort þetta skýri mismuninn milli áranna."
Fréttir Innlent Mest lesið Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Innlent Grunur um brot gegn fleiri börnum Innlent Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Innlent Lést við tökur á Emily in Paris Erlent Algjört hrun í fálkastofninum Innlent Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Innlent Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist Innlent Fleiri fréttir Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísi Klöru Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Algjört hrun í fálkastofninum Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Útihátíð fyrir ungmenni gekk eins og í sögu Ferðamaður neitaði að borga reikninginn og lét öllum illum látum Stungumanni í Bankastrætismálinu aftur stungið í steininn Sjö ára hlaupari kemur hópnum yfir línuna í sjötta maraþoninu á morgun Skoða að flýta aðgerðum í húsnæðismálum til að ná tökum á verðbólgunni „Versti tíminn, allra versti tíminn“ Gamall þristur strand vegna skorts á bensíni Hátt í tveggja tíma veðmálaauglýsing í boði Rúv Hraðbankinn ófundinn, hungursneyð og skólar hefjast Farþegar látnir sofa á gólfinu á hóteli í Keflavík Grunaður hraðbankaþjófur í gæslu eftir allt saman Þurfa að bíða lengur eftir að komast í Sundhöllina Sjá meira