Innlent

Menntaskólinn Kópavogi fullsetinn

Menntaskólinn í Kópavogi er fullsetinn og getur ekki tekið við fleiri nýnemum, segir Steinnunn Inga Óttarsdóttir, áfangastjóri skólans. Greint var frá því að örfá sæti væru laus í frétt blaðsins í gær. Þau eru á skrifstofubraut tvö. Inntökuskilyrði er að hafa lokið skrifstofubraut eitt eða 2-3 önnum í framhaldsskóla. Einnig eru nokkur laus pláss í hagnýtt fjármála- og viðskiptagreinanám sem er sérsniðið að þörfum fjármálafyrirtækja. Skrifstofur skólans opna 4. ágúst. Sjá upplýsingar á heimasíðu skólans.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×