Innlent

Unnið í samráði við hagsmunaaðila

Innan samgönguráðuneytisins er því vísað á bug að ekki hafi verið unnið að því að koma á reglum um skipaskráningu íslenskra kaupskipa en félag skipstjórnarmanna hefur þungar áhyggjur af mikilli fækkun Íslendinga í áhöfnum þeirra erlendu skipa sem hér starfa fyrir íslenskar kaupskipaútgerðir. Er bent á þá staðreynd að Sturla Böðvarsson samgönguráðherra setti ásamt Geir Haarde fjármálaráðherra á fót starfshóp til að fara yfir og koma með tillögur að frumvarpi til laga um íslenska alþjóðlega skipaskrá. Hefur verið unnið síðan að því að kanna fjárhagslegan ávinning, kostnað af stofnun slíkrar skipaskrár og hver þörfin sé hér á landi. Sé tekið mið af nágrannaþjóðum eru skattaívilnanir af hálfu stjórnvalda forsenda stofnunar slíkra skráa og hafa stjórnvöld hérlendis að nokkru tekið fyrstu skrefin í þá átt með undanþágu frá stimpilgjöldum af afsali og veðböndum og enn fremur heimilað þurrleiguskráningu á íslensku skipaskránni. Þetta hefur gert að verkum að kostnaður við skráningu hérlendis og erlendis er svipaður. Hagsmunaaðilar hafa einnig sýnt samstarfsvilja sem ekki var til staðar áður og standa vonir til að hægt verði að komast að niðurstöðu innan tíðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×