Innlent

Uppsagnir meinatækna

Meinatæknafélag Íslands mótmælir harðlega þeirri ákvörðun að öllum meinatæknum á Heilsuverndarstöð Íslands var sagt upp í dag með aðeins þriggja daga fyrirvara en uppsagnirnar taka gildi 1. júlí. Starfsfólkinu hefur verið boðin störf hjá Landspítalanum en stöður hjá heilsugæslunum lagðar niður og færðar undir spítalann. Allir starfsmennirnir sjö hafa ákveðið að hætta frekar störfum um mánaðamótin og hafa þeir stuðning stjórnar Meinatæknafélagsins.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×