Innlent

Ákæruvaldið fær á baukinn

Ákæruvaldið fær á baukinn í dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í fjársvikamáli sem kveðinn var upp í dag. Um er að ræða mál þar sem maður var ákærður í níu liðum fyrir að hafa svikið fé úr fjórum tryggingafélögum á árunum 1989-1991. Maðurinn var ákærður og hnepptur í gæsluvarðhald árið 1992 en síðan lá málið óhreyft hjá lögreglu í sjö ár, eða til ársins 1999. Héraðsdómur sýknar manninn af öllum ákæruliðum en lætur ekki þar við sitja heldur ávítar ákæruvaldið fyrir drátt sem varð á málinu, fyrst hjá lögreglu og síðar fyrir dómi. Í niðurstöðu segir að slíkur dráttur sé andstæður lögum um meðferð opinberra mála, ákvæðum stjórnarskrárinnar og mannréttindasáttmála Evrópu. Að mati dómara er þessi dráttur ákæruvaldsins ámælisverður. Orðrétt segir: „Allur málatilbúnaður ákæruvaldsins er mjög ruglingslegur og mjög erfitt og oft útilokað að sjá tengsl einstakra skjala við einstaka ákæruliði. Þá er hluti skjala illlæsilegur, nánast ólæsilegur, til að mynda mörg ljósrit, sem liggja frammi meðal gagna málsins en þessi skjöl eru sum hver um 12 ára gömul og því eðlilegar skýringar á óskýrleika þeirra að þessu leyti. Allur þessi málatilbúnaður stappar nærri að vísa beri máli þessu frá dómi.“ Þar sem maðurinn hafði þegar gefið skýrslu við gæsluvarðhald árið 1992 þótti samt rétt að kveða upp efnislegan dóm og var hann, sem áður segir, sýknaður af öllum ákæruliðum og skaðabótakröfum allra tryggingafélaga vísað frá dómi. Auk þessa mun sakakostnaður greiðast úr ríkissjóði.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×