Innlent

Kona slasast í bílveltu

Þýsk ferðakona slasaðist alvarlega þegar bíll sem hún var í valt út af þjóðveginum sunnan við Húsavík í gærkvöldi. Hún var fyrst flutt ásamt annarri konu úr bílnum á Sjúkrahúsið á Akureyri og síðan með sjúkraflugi á Landspítalann í Reykjavík þar sem hún liggur nú. Bæði háls- og hryggjarliðir munu hafa skaddast en ekki er ljóst hversu alvarlegar afleiðingar það kann að hafa. Tildrög slyssins eru óljós en góð akstursskilyrði voru á vettvangi og vegurinn malbikaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×