Innlent

Tveir vélhjólaökumenn slasast

Tveir ökumenn torfærumótorhjóla slösuðust í gærkvöldi þegar þeir voru að æfa sig. Annars vegar stakkst hjól inn í fyrirstöðu á æfingasvæðinu á Álfsnesi þannig að ökumaður kastaðist fram á stýrið og meiddist á brjósti. Hins vegar prjónaði hjól aftur fyrir sig í grennd við Kleifarvatn og lenti ofan á ökumanni sem meiddist á höndum og fótum. Báðir voru fluttir á slysadeild og gengust undir aðgerð en hvorugur mannanna er lífshættulega slasaður.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×