Ísraelskur ferðamaður varð úti 28. júní 2004 00:01
Ferðamaðurinn sem björgunarsveitir á Suðurlandi leituðu að í fyrradag fannst látinn um eittleytið aðfaranótt mánudags á gönguleið milli Landmannalauga og Þórsmerkur. Maðurinn, sem var 25 ára Ísraeli, lagði af stað frá Landmannalaugum klukkan eitt á sunnudaginn og ætlaði sér að ganga Laugaveginn. Hann var mjög illa útbúinn, aðeins í venjulegum strigaskóm og léttum hlífðarbuxum og jakka. Skálaverðir við Landmannalaugar hvöttu manninn til að fara ekki svo illa útbúinn þar sem snjór væri á leiðinni og það gæti orðið kalt, en hann hélt engu að síður af stað. Um fimmleytið hringdi maðurinn í Neyðarlínuna og óskaði eftir aðstoð, en þá var hann villtur og vissi það eitt að hann var einhvers staðar sunnanmegin við Landmannalaugar. Ljóst var að maðurinn var í töluverðum vandræðum og lagði 70 manna björgunarlið á tólf jeppum af stað til leitar. Um eittleytið um nóttina fannst maðurinn látinn, um það bil einum kílómetra frá skála við Hrafntinnusker. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Hvolsvelli er rannsókn málsins á frumstigi og dánarorsök liggur ekki endanlega fyrir en líklegt er að maðurinn hafi orðið úti. Aðstandendur mannsins hafa verið látnir vita. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu var veður slæmt á svæðinu við Landmannalaugar og í kring; nokkur súld var og allhvasst til fjalla, vindur á bilinu 15-20 metrar á sekúndu, hiti var um sjö gráður og má gera ráð fyrir að vindkæling hafi verið um tíu gráður.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira