Innlent

Stærri en reglur kveða á um

Herbergin sem kínverskir starfsmenn við Kárahnjúkavirkjun gista í eru örlítið stærri en reglur um aðstöðu fyrir starsmenn kveða á um, að sögn Ómars R. Valdimarssonar, talsmanns Impregilo. Ómar segir herbergin hins vegar vera minni en önnur herbergi á svæðinu. Það sé vegna þess að vinna við virkjunina hafi unnist með öðrum hætti en upphaflega hafi verið gert ráð fyrir. Á svæðinu séu starfsmenn að vinna að uppsetningu á starfsmannaaðstöðu sem eigi að vera komin í gagnið innan tveggja mánaða. Hann segir afar óheppilegt að þetta hafi helst bitnað á kínverskum starfsmönnum fyrirtækisins. Enginn þeirra hafi þó kvartað undan aðstöðunni. Ómar segir að í frétt Fréttablaðsins um málið á sunnudaginn hafi verið rangt eftir sér haft. Í blaðinu var haft eftir Ómari að "[kínversku starfsmennirnir væru] sáttir og ekkert að springa." Ómar segir þetta ekki vera rétt. Impregilo krefjist þess af öllum sínum starfsmönnum að þeir sýni nærgætni fyrir siðum og menningu samstarfsmanna sinna og það geri hann enda sé hann fulltrúi fyrirtækis sem hafi hafi á sínum snærum starfsmenn af 35 þjóðernum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×