Innlent

Ungir listamenn niðri í fjöru

Listhneigð ungmenni komu saman í fjörunni við Sörlaskjól í dag. Tilefnið var verkefni á sumarnámskeiði Myndlistarskólans í Reykjavík þar sem landslag var málað og lífríki sjávar grandskoðað. Einbeitingin skein úr hverju andliti í sjávargolunni við Sörlaskjólið og listamennirnir ungu beittu fyrir sig vatnslitum af mikilli kostgæfni þar sem fréttamann bar að garði. Eftir listmálun dagsins gáfu krakkarnir sér tíma til að útskýra verkefnið og sögðu meðal annars að fyrst teikni þau grunnliti fjörunnar og svo það sem finnist í sjónum.  Ljóst er að af nógu verður að taka í listmáluninni enda var lífríkið með sprækara móti og m.a. skutu þarna upp kollinum marflær og smákrabbar. Krakkarnir sem saman voru komnir í fjörunni í dag eru á aldrinum 6-13 ára og í hópnum voru bæði byrjendur og lengra komnir.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×