Rafn Jónsson látinn 28. júní 2004 00:01
Rafn Jónsson tónlistarmaður lést á heimili sínu í Hafnarfirði í gær eftir langa baráttu við MND- taugasjúkdóminn. Rafn var fæddur á Ísafirði árið 1954 og hefði því orðið fimmtugur síðar á þessu ári. Hann barðist hetjulega við sjúkdóminn af einstöku æðruleysi og lét aldrei bugast þótt á móti blési. Rafn stofnaði MND-félagið árið 1993 í samvinnu við aðra MND-sjúklinga og var áður í forystusveit íslenskra popptónlistarmanna í hljómsveitum á borð við Grafík, Bítlavinafélagið og Sálina hans Jóns míns. MND sjúkdómurinn er afar grimmur sjúkdómur. Hann er banvænn og ágerist yfirleitt hratt. Hann herjar á hreyfitaugar líkamans sem flytja boð til vöðvanna og leiðir til máttleysis í vöðvum og síðan lömunar. Aðeins einn af hverjum tíu lifa í 10 ár eftir að sjúkdómurinn gerir vart við sig. Rafn greindist með MND um áramótin 1987/88 og barðist því við sjúkdóminn í yfir 16 ár. Rafn hætti aldrei tónlistarsköpun sinni. Síðustu mánuði vann hann að sólóplötu, ásamt sonum sínum Ragnari og Agli, og höfðu þeir nýlokið upptökum í Abbey Road hljóðverinu og hljóðblöndun með upptökustjóranum Ken Thomas. Að sögn eftirlifandi eiginkonu hans, Friðgerðar Guðmundsdóttur, var Rafn mjög sáttur við útkomuna og er stefnt að því að platan komi út í haust. Guðjón Sigurðsson, félagi í MND félaginu, stendur fyrir söluherferð til að styrkja Framkvæmdasjóð félagsins. Upplýsingar um hana er að finna á heimasíðu félagsins, mnd.is
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira