Innlent

Nýta olíufélögin sér fákeppni?

Flutningsjöfnunarsjóður olíuvara kemur ekki í veg fyrir að olíufélögin virðast nýta sér fákeppni í strjálbýlinu og selja bensínlítrann á allt að níu krónum hærra verði þar en þar sem samkeppni er virk, t.d. á höfuðborgarsvæðinu. Samkvæmt könnun neytendasamtakanna í síðustu viku, þar sem lægsta bensínverð var kannað víða um land, var það allt frá 99 krónum og 70 aurum í Hafnarfirði þar sem samkeppnin er mest, m.a. vegna Atlantsolíu, upp í 108 krónur og 90 aura lítrinn á stöðum eins og Siglufirði, Vík, Seyðisfirði og Patreksfirði þar sem ekki er virk samkeppni. Verðmunurinn er u.þ.b. níu krónur á lítrann og einhverra hluta vegna hafa Esso og Skeljungur fundið nákvæmlega sama verðið fyrir bensín á þessum, og mörgum fleiri stöðum, sem búa við sömu aðstæður, þ.e.a.s. fákeppni. Útilokað er að bera við flutningskostnaði því við allan innflutning olíuvara er tekið ákveðið hlutfall og sett í svonefndan flutningsjöfnunarsjóð olíuvara til þess að tryggja að hver lítri af olíu og bensíni komist til allra landshorna á nákvæmlega sama verði, áður en olíufélögin fara að leggja á. Það er því einfaldlega hærri álagning þar sem fákeppni er því olíulítrinn af dælu í Reykjavík og Vopnafirði kostar olíufélögin nákvæmlega jafn mikið. Upphaflega var sjóðnum ætlað að tryggja að bensín og olía kostaði það sama um allt land en eftir þrýsting frá olíufélögunum var álagning gefin frjáls. Verðjöfnun hins opinbera nær því ekki lengur nema til flutningskostnaðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×