Innlent

Bakkavör styrkir Þjóðminjasafnið

Þjóðminjasafn Íslands og Bakkavör Group hafa undirritað samstarfssamning til þriggja ára. Samningurinn felur í sér að Bakkavör Group sér safninu fyrir öflugri margmiðlun og tölvuveri auk annarra þátta sem snúa að nýjustu straumum í sýningartækni. Í tilkynningu frá Þjóðminjasafninu er samningurinn sagður styrkja safnið í viðleitni að gera safnið nútímalegt og að fagnar Þjóðminjasafnið að fá Bakkavör í hóp sinna bakhjarla.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×