Oriana kemst í höfn 26. júní 2004 00:01
Eitt stærsta skemmtiferðaskip heims, Oriana, neyddist til að sigla út úr ytri höfninni í Reykjavík í dag vegna hvassviðris. Síðdegis var ákveðið að það legðist að bryggju í Sundahöfn til að unnt yrði að koma farþegunum aftur um borð. Oriana, sem er 69 þúsund tonn að stærð og 260 metrar á lengd, kom inn á ytri höfnina klukkan sjö í morgun og voru farþegarnir sendir í land á léttbátum skipsins. Um hádegisbil var orðið það hvasst að ekki þótti þorandi að hafa skipið á ytri höfninni og var því siglt út Faxaflóa. Um 1400 farþegar skipsins voru hins vegar komnir í land og komust ekki út í skipið aftur. Þeir voru því strandaglópar í landinu. Ekki þótti gerlegt að láta bátana ferja farþegana út aftur. Síðdegis var gripið til þess ráðs að sigla skipinu inn í Sundahöfn en svo vel vildi til að ekkert flutningaskip var þá við lengsta viðlegukantinn í gámahöfninni. Þangað sigldi Oriana inn um fimmleytið og telja kunnugir að þetta sé stærsta farþegaskip sem lagst hafi að landi hérlendis. Gert var ráð fyrir að það sigli frá Reykjavík með alla farþega og áhöfn, alls 2000 manns, um kvöldmatarleytið.
Fréttir Innlent Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira