Innlent

Félagsmálaráðherra í Malaví

Árni Magnússon, félagsmálaráðherra, hélt í dag til Malaví þar sem hann mun m.a. eiga viðræður við félagsmálaráðherra Malaví um nánara samstarf á sviði félagsmála, einkum er varðar velferð barna og fjölskyldna. Þá mun ráðherra eiga fund með nýkjörnum forseta Malaví, Dr. Bingu wa Mutharika og opna nýja sendiskrifstofu Íslands í höfuðborg landsins, Lilongwe. Heimsókn félagsmálaráðherra stendur m.a. í tengslum við að félagsleg verkefni Íslendinga í Malaví standa nú á tímamótum. Á meðan ráðherrann var formaður stjórnar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands var hrundið af stað umfangsmiklu fullorðinnafræðsluverkefni í héraðinu umhverfis Monkey Bay í Malaví og var það verkefni hið fyrsta sinnar tegundar á verkefnalista ÞSSÍ í landinu. Verkefnið hefur vaxið mjög hratt og nær nú til um 50 þorpa með fleiri hundruð þátttakendum. Nú á að kanna árangur verkefnisins og marka stefnu um áframhaldandi samstarf, og er fyrirhugað að Árni undirriti samkomulag um frekara samstarf milli félagsmálaráöuneytisins á Íslandi og félagsmálaráðuneytis Malaví. Í heimsókn sinni mun Árni auk þess kynna sér framgang félagslegra verkefna Íslendinga í landinu og vígja skólabyggingu sem ÞSSÍ hefur reist í Msakaþorpi, m.a. með stuðningi íslenska félagsmálaráðuneytisins. Skólinn mun rúma 1200 börn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×