Innlent

Krefst refsingar og réttindamissis

Ákæra á hendur Gunnari Erni Kristjánssyni, fyrrverandi forstjóra SÍF og fyrrum endurskoðanda Tryggingasjóðs lækna, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Gunnar Örn er sakaður um brot á almennum hegningarlögum, lögum um ársreikninga, lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða og lögum um endurskoðendur. Gunnar Örn er í ákæru sagður hafa vanrækt skyldur sínar sem löggiltur endurskoðandi ársreikninga Tryggingasjóðs lækna á árunum 1993 til 2001. Hann hafi eftir endurskoðun á ársreikningum sjóðsins fyrir árin 1992 til 2000 áritað ársreikningana án fyrirvara og með yfirlýsingu um að þeir gæfu glögga mynd af efnahag og breytingu á eign sjóðsins án þess að hafa aflað fullnægjandi gagna eða skoðað þau gögn sem fyrir voru með fullnægjandi hætti. Gunnar Örn er sakaður um að hafa ekki kannað á fullnægjandi hátt gögn sem lágu að baki skuldabréfalistum sem fyrir hann voru lagðir þrátt fyrir að gögn gæfu til kynna að níutíu prósent eigna sjóðsins væru bundin í skuldabréfum. Einnig hafi hann ekki aflað gagna um lífeyrisgreiðslur, endurgreiðslur, réttindaflutning og útborganir úr sjóðnum né aflað gagna um sundurliðaða inneign sjóðsfélaga. Þá aflaði hann ekki nægjanlegra gagna um eignastöðu og skuldbindingar sjóðsins til að geta endurskoðað ársreikninga í samræmi við reglur bankaeftirlitsins og síðar Fjármálaeftirlitsins um endurskoðun lífeyrissjóða. En við rannsókn kom í ljós að raunvirði eigna sjóðsins í árslok 2000 var innan við 35 prósent af metnu verðmæti eignanna samkvæmt ársreikningnum. Ákæruvaldið krefst að Gunnar Örn verði dæmdur til refsingar og að hann verði sviptur réttindum til starfa sem löggiltur endurskoðandi. Fyrir skemmstu var fyrrverandi framkvæmdastjóri Tryggingasjóðs lækna, Lárus Halldórsson, ákærður fyrir fjárdrátt samtals að upphæð tæplega 76 milljóna króna á árunum 1992-1999. Gunnar Örn var endurskoðandi sjóðsins allan þann tíma. Ekki er víst hvort Gunnar Örn hafi skrifað undir reikningana vitandi um fjárdráttinn eða hvort hann gerði það í blindni.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×