Hverfamiðstöðvar taka til starfa 25. júní 2004 00:01
Sérstakar hverfamiðstöðvar taka til starfa í öllum hverfum borgarinnar. Breytingin sem var samþykkt á fundi borgarstjórnar í gær gegn atkvæðum sjálfstæðismanna hefur áhrif á störf 500 borgarstarfsmanna. Innan vébanda hverfastöðvanna verður nær öll þjónusta borgarinnar við fjölskyldur í Reykjavík, félagsþjónustan, sérfræðiþjónusta fyrir leikskóla og grunnskóla sem áður var veitt hjá Fræðslumiðstöð. Auk þess verða fulltrúar frá íþrótta og tómstundaráði til staðar, og almenn upplýsingaþjónusta um borgarmál. Þegar hefur verið tilkynnt að engum verði sagt upp vegna breytingarinnar en fyrir liggur að starfslýsing mun breytast sem og væntanlega kjör starfsmanna. Fulltrúar verkalýðsfélaganna og borgarinnar hittust á fundi í dag og ræddu áhrif breytingarinnar sem verða unnar í samráði við félögin. Hverfismiðstöðin Miðgarður í Grafarvogi hefur verið rekinn með þessu sniði frá árinu 1997 sem tilraunaverkefni. Þá hefur einnig verið starfrækt hverfamiðstöð í Vesturbæ en með öðru sniði. Hún breytist eftir samþykktina í gær. Sjálfstæðismenn eru andvígir breytingunni og segja kostnað við þjónustuna aukast án þess að sýnt sé fram á að hún batni. Þetta gangi þvert gegn þeim markmiðum að einfalda stjórnkerfi borgarinnar og áhrif borgarfulltrúa og fulltrúa í nefndum og ráðum muni minnka. Lítið samráð hafi verið haft um breytingarnar, við fulltrúa í nefndum og ráðum og þá fjölmörgu starfsmenn sem breytingin nær til.
Fréttir Innlent Mest lesið Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Innlent Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Innlent Rússneskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps Erlent Eldur í Elliðaárdal Innlent Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Innlent Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Innlent Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Innlent Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Innlent Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Innlent Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Innlent Fleiri fréttir Fimm mínútna viðbót við aðgerð geti dregið úr áhættu á krabbameini Mun Tækniskólinn rísa í Úlfarsárdal? Snúist um dómgreind frekar en gervigreind Fannst eftir rúma tveggja sólarhringa leit: „Hún er eitthvað óvenjuleg þessi hryssa“ Þyrlurnar sinntu útkalli úti á ballarhafi annan daginn í röð Eldur í Elliðaárdal Dómur um ólögmæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi Samkomulag Tækniskólans og Hafnarfjarðar út um þúfur Unnið að uppfærslu umferðarljósa Mannauðsstjórinn skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands Grafalvarlegt að banna heila atvinnugrein Höfnuðu kraðaki raka um meint ólögmæti atkvæðagreiðslunnar Vill stórminnka Rúv og hafnar tengingu Gísla við fjarhægri Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Greip um eistu lögreglumanns „Takmörkuð sólmyrkvaáhrif“ Íþróttafélög fá að beina frekari upplýsingum að börnum Tíu þúsund börn búi á heimilum undir lágtekjumörkum Kominn á Vernd tveimur árum eftir morðið vegna túlkunaratriðis „Það þarf að hreinsa aðeins loftið“ Hóta tollum vegna hvalveiða og hægri stjórn virðist fallin Banamaður Bryndísar Klöru kominn á Vernd Lýsa vonbrigðum með framgöngu Icelandair í miðri atkvæðagreiðslu Tveir hópferðabílar skullu saman á Suðurlandsbraut Frakkar og Litáar endurskoða Ríkisendurskoðun Lifði af bílslys en missti besta vin sinn Tollum hótað vegna hvalveiða sem verða bannaðar Útkall vegna hópslagsmála í bílakjallara „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Sjá meira