Bókhald Landssímans var í ólestri 24. júní 2004 00:01
Bókhald Landssímans var í ólestri, reikningar ekki skráðir fyrr en við greiðslu og margir óstemmdir biðreikningar. Þetta sagði Sveinbjörn Kristjánsson fyrir dómi en í gær fékk hann þungan fangelsisdóm vegna Landssímamálsins. Landssíminn íhugar að höfða einkamál á hendur fjórmenningunum sem hlutu dóm í málinu en skaðabótakröfu félagsins upp á 246 milljónir var vísað frá dómi í gær. Fyrirtækið telur dóm Héraðsdóms leggja grunn að bótaskyldu sakborninganna en Sveinbjörn Kristjánsson viðurkenndi bótaskyldu fyrir dómi en hin ekki. Bótakröfur fá sjaldnast framgang í viðamiklum málum og eru einkamál yfirleitt höfðuð í kjölfarið líkt og í þessu máli. Í dómnum segir að bótakrafa fyrirtækisins hafi ekki verið nægilega reifuð. Til að mynda hafi ekki komið fram hvort Landssíminn hafi leitast við að gera kröfur gegn þeim einkahlutafélögum sem féð rann til. Þar má nefna, auk Alvöru lífsins sem fékk 160 milljónir sem runnu óskertar inn í rekstur Skjás eins, Hanann, Lífstíl og Hafskip. Eignir hlutafélaganna og sakborninganna, þar á meðal íbúðir, hlutabréf og bifreiðar, voru kyrrsettar á sínum tíma og andvirði þeirra rann til Landssímans. Alls voru það ekki nema 20-30 milljónir. Ekki er hægt að ganga að Skjá einum, samkvæmt heimildum Stöðvar 2, og Alvara lífsins á ekki krónu. Hið sama er að segja um einkahlutafélögin. Öll verðmæti sem eftir voru hafa þegar runnið til Landssímans. Einkamál mun því varla hafa í för með sér nema kostnað fyrir Landssímann en krafan mun standa á sakborningunum um ókomna framtíð. Sveinbjörn Kristjánsson leysti út tékka úr sjóðum Landssímans, millifærði um bankalínu út af reikningi fyrirtækisins og dró sér fjármuni af bankareikningi þess með því að breyta textaskrám í rafrænu greiðslukerfi sem leiddi til þess að greiðslur runnu inn á reikninga hans eða reikninga tengdum honum. Þetta fór alfarið fram hjá endurskoðendum og forráðamönnum Landssímans og kaupa þurfti aðstoð sérfróðra manna fyrir þrettán milljónir til að upplýsa hvernig staðið var að fjárdrættinum. Sveinbjörn sjálfur aðstoðaði við að varpa ljósi á málið. Sé horft til lýsinga sakborningsins sjálfs á því hvernig bókhaldi Landssímans var háttað hljóta það að hafa verið kjöraðstæður fyrir fjársvikara og enga brakandi snilld hefur þurft til að fara fram hjá eftirlitskerfi Símans. Sveinbjörn segir að bókhald fyrirtækisins hafi verið í slæmu ásigkomulagi. Margir óstemmdir biðreikningar hafi verið til staðar og ekki hafi verið vitað hvaða reikningar væru á leið til félagsins. Því hafi í raun verið lítil yfirsýn yfir reksturinn.
Fréttir Innlent Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira