Innlent

Brotlendingin í rannsókn

Rannsóknarnefnd flugslysa rannsakar nú tildrög þess að nítján sæta Dornier flugvél frá Íslandsflugi, með tvo flugmenn um borð, magalenti á Siglufjarðarflugvelli laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi, án þess að nokkurn sakaði. Vélin hafði verið í áætlunarflugi frá Reykjavík til Sauðárkróks en þaðan héldu flugmennirnir í æfingaflug til Siglufjarðar. Þeir virðast í fljótu bragði hafa gleymt að láta hjólin niður fyrir lendingu, eða fengið vindhviðu á vélina, þannig að vélin lenti á skrokknum á brautinni og er talsvert skemmd. Flugvöllurinn lokaðist af þessum sökum og þurfti rannsóknarnefndin að fljúga til Sauðárkróks og aka þaðan á vettvang. Vélin verður fjarlægð af brautinni í dag og Íslandsflug leitar nú annarrar vélar til leigu á meðan gert verður við hana. Meðfylgjandi mynd tók Jón Örvar Gestsson fyrir Stöð 2 á flugvellinum í gærkvöld.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×