Innlent

Ákvörðun um skólagjöld pólitísk

Deildarforsetar við Háskóla Íslands segja skólann ekki hafa fjármagn til að kenna öllum þeim nemendum sem sækja nám við skólann. Eigi að setja skólagjöld við Háskólann sé það hins vegar pólitísk ákvörðun og ekki rétt að þvinga skólann til að eiga frumkvæði að slíkri gjaldtöku. Engar undanþágur voru veittar við innritun í Háskólann líkt og verið hefur undanfarin ár. Ágúst Einarsson, forseti viðskipta- og hagfræðideildar HÍ segir aðgerðirnar tilkomnar vegna fjárskorts; skólann skorti fjármagn fyrir alla þá nemendur sem stunda þar nám og hann geti, og megi, ekki fara yfir fjárlög. Hann segir boltann því vera hjá ríkisvaldinu.  Forseti heimspekideildar, Anna Agnarsdóttir, tekur í sama streng. Ekki sé rétt að stjórnvöld neyði yfirmenn Háskólans til að eiga frumkvæði að skólagjöldum með því að fjársvelta skólann. Ákvörðun um að taka upp skólagjöld við þjóðarháskóla Íslands sé alfarið pólitísk. Steingrímur Sigurgeirsson, aðstoðarmaður menntamálaráðherra, segir það vissulega rétt að á endanum sé ákvörðun um skólagjöld við Háskólann pólitísk í eðli sínu. Hins vegar þvingi menntamálayfirvöld ekki HÍ til að taka upp skólagjöld. Það sé nauðsynleg forsenda slíkrar ákvörðunar að forystumenn Háskólans fallist á hana.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×