Innlent

Enn margir á biðlista

Tæplega 150 unglingar eru enn á skrá eftir atvinnu hjá Vinnumiðlun ungs fólks í Reykjavík þrátt fyrir að langt sé liðið á sumar en alls sóttu rúmlega 2.700 unglingar um í vor. Þar af hafa tæplega 1.300 verið ráðnir en þúsund drógu umsóknir sínar til baka sem þýðir að líkindum að þeir hafa fengið starf annars staðar. Þá hafa 3.500 yngri skólanemar verið ráðnir í sumar ásamt 230 leiðbeinendum hjá Vinnuskólanum og Orkuveita Reykjavíkur hefur fengið 250 nema til sumarstarfa þar að auki.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×