Innlent

Tekinn með hass

Karlmaður á átjánda ári var handtekinn af lögreglunni á Ísafirði með tæplega 60 grömm af kannabisefnum í gærmorgun. Hann var að koma með áætlunarvél frá Reykjavík. Manninum var sleppt eftir yfirheyrslu en þar sagði hann efnið til eigin neyslu. Lögreglan telur að aðrir tengist ekki málinu. Maðurinn hefur ekki komið við sögu lögreglunnar vegna fíkniefnamála en hefur þó legið undir grun. Lögreglustjóri fær málið fjótlega til refsimeðferðar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×