Innlent

Veitir 200 manns atvinnu

Bandaríski stálpípuframleiðandinn IPT hefur tilkynnt bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ að fyrirtækið sé á lokastigum í samningum við stóran evrópskan banka um að leiða lánsfjármögnun stálpípuverksmiðju í Helguvík. Um verður að ræða atvinnu fyrir nær 200 manns. Gert er ráð fyrir að fjármögnunarferlið taki nú 4-5 mánuði og í framhaldi af því verði hafist handa við byggingu verksmiðjunnar. Suður-Kóreska fyrirtækið Daewoo er yfirverktaki verksmiðjunnar og samhliða samningum við bankann segjast forsvarsmenn IPT vera að ganga frá samningum við Daewoo. Þetta kemur fram í frétt frá bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ. IPT hafi nýverið rætt við íslenska banka um lánsfjármögnun og fengið jákvæð svör um hluta fjármögnunar. Í framhaldi af því var rætt við erlenda banka og niðurstaða þeirra viðræðna hefur skilað sér í samkomulagi við virtan evrópskan banka um að leiða lánsfjármögnun. Í framhaldi af viljayfirlýsingu hins erlenda banka, sem nú liggur fyrir, verður gengið frá fjármögnunarsamningi. Gert er ráð fyrir að unnið verði að þeim verkefnum næstu 4-5 mánuði en í framhaldi af því verði hægt að hefjast handa við byggingu verksmiðjunnar á nýju ári. Bygging IPT-stálpípuverksmiðjunnar í Helguvík kostar um fimm milljarða króna.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×