Innlent

Framlengja samstarfssamning

Össur hf. og Íþróttasamband Fatlaðra (ÍF) hafa framlengt samstarfssamning sinn sem er til fjögurra ára. Um er að ræða fjárhagslegan styrk sem er ætlaður til styrktar ÍF meðal annars við undirbúning og þátttöku á Ólympíumóti fatlaðra í Peking 2008. Össur hf. hefur markað sér þá stefnu að beina styrkveitingum sínum til fatlaðra og þeirra sem nota vörur fyrirtækisins. Um árabil hefur Össur hf. starfað með notendum við þróun á nýjum vörum og í auknum mæli styrkir Össur fatlaða íþróttamenn um heim allan sem eru á meðal þeirra bestu í heiminum í dag. Þeir Íslendingar sem munu taka þátt fyrir Íslands hönd á Ólympíumóti fatlaðra í Aþenu í september eru; Kristín Rós Hákonardóttir, Jón Oddur Halldórsson og Jóhann Rúnar Kristjánsson.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×