Innlent

Húsflugan að drepa allt og alla

"Húsflugan er að drepa allt og alla núna," sagði Smári Sveinsson, meindýraeyðir hjá Varnir og eftirlit. "Það er allt fullt hjá fólki og fyrirtækjum og Mosfellsbær er gjörsamlega að kafna í þessu," bætti hann við. Smári sagði, að best væri að drepa fluguna með lími með sérstöku hormóni, sem laðaði hana að. "Þær sækja alveg svakalega í þetta lím." sagði hann. "Flugan lifir við kjöraðstæður núna, í svona miklum hita og þessu rakastigi, þannig að hún nær að fjölga sér mjög hratt. Hún er óvenju kvik og erfitt að ná henni." Smári sagði, að húsflugan væri óþverrameindýr. Hún væri með sograna, sem þýddi að hún hrækti í mat sem hún settist á til að mýkja hann svo hún gæti sogið hann upp. Svo skiti hún í hann áður en hún flygi. Á löppunum væri hún með sogskálar, þannig að hún flytti með sér alls konar skít og bakteríur, þar sem hún kæmi víða við. Fólki væri skiljanlega illa við hana. Smári sagði, að geitungarnir væru einnig komnir af stað og væri í fyrra fallinu. Hann kvaðst hafa verið að enda við að taka bú í mandarínustærð, með 5-10 geitungum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×