Innlent

Greenpeace mótmælt á Ísafirði

Sonur ísfirsks hvalveiðimanns sigldi ítrekað í veg fyrir flaggskip Grænfriðunga þegar það var að leggjast að í Ísafjarðarhöfn í morgun. Flaggskip Greenpeace samtakanna Esperanza sigldi inn á Skutulsfjörð í morgun en Ísafjörður er fyrsti viðkomustaðurinn í tveggja vikna heimsókn skipsins til Íslands. Tilgangur Íslandsferðarinnar er meðal annars sá að hvetja Íslendinga til að hætta hvalveiðum. Grænfriðungar fengu hins vegar óvinveittar viðtökur þegar skip þeirra nálgaðist bryggju því þá var slöngubát siglt meðfram hlið þess og síðan fram fyrir stefnið. Bátnum stýrði Haraldur Tryggvason, 38 ára gamall sonur Tryggva Guðmundssonar hrefnuveiðimanns, en Haraldur kvaðst með þessu vilja minna Grænfriðunga á hvaða aðferðir þeir notuðu á sínum tíma við að trufla hvalveiðar Íslendinga. Frode Pleym, talsmaður Grænfriðunga sagðist þó hafa haft gaman að þessu enda þoldu Grænfriðungar það alveg að þeim væri mótmælt. Hann sagði þá ekki fá slík viðbrögð oft þar sem þeir væru sjálfir friðsamir og vildu ræða málin. Skip Grænfriðunga verður á Ísafirði í dag og á morgun og opið öllum sem vilja koma um borð í heimsókn til skrafs. Skipið siglir á morgun til Húsavíkur og verður þar fram á laugardag en verður svo í Reykjavík í næstu viku. Það verður opið öllum þeim sem vilja koma í heimsókn til skrafs. Frode segir þá ekki bara ætla að tala um hvalveiðar heldur einnig um hreinsun sjávar og loftlags auk annars.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×