Setja varnarliðinu úrslitakosti 22. júní 2004 00:01
Það er í alla staði óeðlilegt að einungis íslenskum starfsmönnum sé sagt upp hjá varnarliðinu, og þvert á yfirlýsingar yfirmanna liðsins. Ekki gengur að Íslendingum sé sagt upp og Bandaríkjamenn settir í staðinn. Þetta segir Hjálmar Árnason, þingmaður Framsóknarflokksins. Greint var frá því í gær að ekki væri að sjá að niðurskurður hjá varnarstöðinni á Miðnesheiði hefði bitnað á óbreyttum, bandarískum starfsmönnum. Íslendingum hefur fækkað um nærri 150, en bandarískum að því er virðist hefur ekki fækkað, heldur fjölgað um einn. Hjálmar Árnason, sem situr í utanríkismálanefnd, gerir alvarlegar athugasemdir við þetta. Hann segir það ólíðandi ef Bandaríkjamenn ganga inn í þau störf sem Íslendingar hafi gengt áður. Hann segir að það myndi stangast á við það samkomulag sem verið hefur milli íslenskra stjórnvalda og varnarliðsins. Talað hefði verið um að niðurskurður kæmi jafnt niður á báðum aðilum. Hann sagði ástæðu til að mótmæla þessu kröftuglega. Hann segir ástandið óþolandi fyrir starfsmenn og tvöföld skilaboð Bandaríkjamanna séu slæm. Annars vegar sé sagður vilji fyrir því að varnarstöðin verði starfrækt áfram, en hins vegar séu tugir starfa skornir niður um hver mánaðamót. Hann telur komið að því að setja þurfi Bandaríkjastjórn úrslitakost svo hún taki ákvörðun um það hvað þeir ætla. Um það þurfi að fást skýr svör þannig að þeir haldi ekki starfsmönnum og samfélaginu á Suðurnesjum í nokkurs konar gíslingu.
Fréttir Innlent Mest lesið Hvarf fyrir tæpum þrjátíu árum og fannst í hopandi jökli Erlent Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Innlent Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Innlent Styttan tekin niður eftir harðar deilur um klúra barma Erlent Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Innlent Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Innlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Innlent Fleiri fréttir Húsvíkingur á Norðurpólnum segir sögu merkustu landkönnuða 20. aldar Þrýstu á yngsta sakborninginn um að taka á sig alla sök Ákvörðun ráðherra muni seinka viðbragði við faröldrum framtíðar Þyrlan aftur á leið austur vegna umferðarslyss Ekki eigi að gera einstaklinga ábyrga fyrir gerðum ríkisstjórnar Tollahækkanirnar vonbrigði og þrýstir á um fund sem fyrst Forsætisráðherra ósátt með tolla og pólfarar á Húsavík Fyrirlestri ísraelsks fræðimanns aflýst eftir skamma stund Golfbolti hafnaði í manni „eftir óteljandi dæmi um óskiljanlega hegðun“ Tveggja bíla árekstur á Suðurlandi Svartaþoka gerir þyrlusveit í útkalli erfitt fyrir Innkalla sælgæti vegna köfnunarhættu Fjarlægði nöfnin strax: „Ætlumst ekki til neins af þessu fólki“ Öryggissérfræðingur hefur trú á boðuðum aðgerðum í Reynisfjöru Segir Höllu ekki skilja um hvað málið snýst Færa sig í Kringluna vegna bílastæðaskorts og framkvæmda Tollastríð, makríll og flutningur Blóðbankans Greina ekki frá tilkynntum kynferðisbrotum á Þjóðhátíð strax Segja Rafmennt auglýsa nöfn sín í blekkingarskyni Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Sjá meira