Tveimur vísað úr landi 22. júní 2004 00:01
Tveimur af þeim þremur Palestínumönnum, sem voru í gæsluvarðhaldi eftir að þeir komu til landsins með fölsuð skilríki, var vísað úr landi í morgun. Þriðja manninum verður vísað úr landi í fyrramálið. Talsmaður þeirra gagnrýnir málsmeðferðina harðlega. Palestínumennirnir komu til Íslands með Norrænu í byrjun maí og framvísuðu fölsuðum eða stolnum vegabréfum við komuna til landsins. Þeir voru handteknir og óskuðu eftir hæli, en hælisbeiðni þeirra var vísað frá, þar sem grunur lék á að þeir tengdust alþjóðlegri glæpastarfsemi. Þeir voru úrskurðaðir í þriggja vikna gæsluvarðhald, sem rann út síðastliðinn miðvikudag, en voru handteknir aftur og úrskurðaðir í varðhald þar til þeim yrði vísað úr landi. Þeir voru sendir á Litla-Hraun vegna rannsóknarhagsmuna, eða á meðan verið var að rannsaka skjalafals í tengslum við þá. Gæsluvarðhaldið var kært til Hæstaréttar, en hann hefur ekki enn tekið afstöðu til málsins. Ljóst er að úrskurður Hæstaréttar mun ekki hafa nokkra þýðingu, þar sem Palestínumennirnir verða alllir farnir frá Íslandi. Guðbjarni Eggertsson, skipaður talsmaður þeirra, gagnrýnir málsmeðferðina harðlega og segir hana brenglaða. Hann bendir á að Útlendingastofnun hafi úrskurðað þann 10. júní að mönnunum skyldi vísað úr landi, en þeim hafi ekki verið birtur sá úrskurður fyrr en 16. júní. Guðbjarni segir kerfið meingallað og það sé alvarlegt að löngu eftir úrskurð Útlendingastofnunar um að vísa mönnunum úr landi, þá skuli dómsmálaráðuneytið ekki enn vera búið að fá í hendur gögn málsins.
Fréttir Innlent Mest lesið Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Innlent Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Fleiri fréttir Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Sjá meira