Óvenjuleg loðnuvertíð 22. júní 2004 00:01
Fimm stór fiskiskip halda til loðnuleitar í dag og á morgun og Hafrannsóknaskipið Árni Friðriksson bætist svo við á föstudag. Í venjulegu árferði væri sumarvertíðin komin í fullan gang. Við eðlilegar aðstæður hefði vertíðin hafist fyrir þremur dögum, en lítið sem ekkert hefur fundist af loðnu þrátt fyrir mikla leit. Hafís truflaði reyndar leitina að ungloðnu í vetur, en hvað sem því líður virðist ástandið vera óvenjulegt. Skipin fimm eiga að leita eftir ákveðnu kerfi og finni eitthvert þeirra loðnu, kemur Árni Friðriksson á vettvang, gerir talningu og tekur sýni. Leiðangursstjóri þar um borð mun svo stjórna leitinni. Loðnan er kaldsjávarfiskur og því eftilvill ekkert óeðlilegt þótt hún finnist ekki enn, enda fer sjór hér við land hlýnandi. Hún fannst til dæmis í Grænlandssundi í fyrravor. Þrátt fyrir það skilaði hún sér í venjulegu magni að landinu í vetur til hrygningar og var veiði góð. Fjarvist hennar frá landinu kann hinsvegar að boða erfiðleika fyrir aðrar fisktegundir við landið, sem éta mikið af loðnu, þær þurfa að snúa sér að öðru æti og jafnvel að éta undan sér.
Fréttir Innlent Mest lesið Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls Innlent Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Innlent Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Erlent Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Innlent Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra Innlent Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Innlent „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Innlent Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Innlent Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Innlent „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Innlent Fleiri fréttir Heimilislausir Píratar leita að nýrri Tortúga Kannski rétt að hverfa frá áformum um nýjan sparkvöll við Landakot Lúther sagður í haldi vegna kókaínsmygls „Fyllerísrugl“ endaði með handtöku og beinbroti Árekstur við afleggjara á Norðurlandi vestra „Hefði mátt koma í veg fyrir enn frekari ótta“ Nýtt app til að finna týndar kisur frumsýnt í dag eftir sex ára þróunarvinnu Rapp og dýrðir í Búðardal Nauðsynlegt að rífa stúkuna sem fyrst Bráð veikindi á Fimmvörðuhálsi Ekið á gangandi vegfaranda við Vík Náði ekki símsambandi og hélt af stað gangandi Með ráðum gert að gefa þjóðinni frí frá pólitíkinni í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar Tveir handteknir eftir hópslagsmál Umferðarslys á Suðurlandi, forsætisráðherra um ESB og Laugardalslaug Afturkalla breytinguna gegn gjaldi Líkamsárás og ölvunarakstur Endalaust þvaður gæti fælt kjósendur frá Synda milli Eyja og Íslands til minningar um Bríeti Irmu Breyttu verklagi eftir ábendingar Hvals: „Bagalegt að íslenskum sjómönnum sé stefnt í hættu“ Innbroti í apótek lauk með glæfraakstri yfir göngubrú Grunur um uppljóstrun, hætta á aðgerðaleysi og eftirför Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut Sakar MAST um að ljóstra upp um staðsetningu skipa Hvals „Sé ekki annað en að Samkeppniseftirlitið sé að sinna sínu hlutverki“ Vesturbæjarlaug opnar dyrnar á ný „Alltaf litið á þetta sem eitthvað sem bráðamóttakan gerir“ Guðlaugur segir Þorgerði á hröðum flótta Þrjú tilvik til rannsóknar: Bandero á ferðinni á hvalamiðum Þorgerður Katrín mun ekki mæta Gulla Þór Sjá meira