Innlent

Stefnt að reglulegum siglingum

Áhafnir á fjórtán sportbátum eru þegar búnar að skrá sig í hópsiglingu frá Ísafirði yfir til Grænlands eftir mánuð og er stefnt að reglulegum siglingum þangað í framtíðinni. Siglingaleiðin er 220 mílur og er ákvörðunarstaðurinn Miki fjörður á Austurströndinni. Að sögn Úlfars Ágústssonar, sem er að skipuleggja ferðina, er hún ætluð sportbátum, sem komast á fimmtán mílna hraða og þar yfir og er áætlaður siglingatími 12 til 15 klukkustundir eftir veðri. Þá fer hundrað tonna birgðabátur með, hlaðinn eldsneyti og matfögnum og ef um semst verður björgunarskipið Gunnar Friðriksson frá Ísafirði með í för. Dvalið verður í tvo daga ytra á eyðiströndum, og meðal annars siglt inn í nálægan fjörð þar sem jökullinn skríður fram og skilar af sér borgarísjökum. Þegar Eiríkur Rauði sigldi héðan til Grænlands fyrir um það bil þúsund árum voru 25 skip í förinni og stefnir Úlfar að því að þau verði ekki færri núna. Siglingin hefsat 21. júlí að lokinni ráðstefnu á Ísafirði um siglingaleiðir á millli Íslands og Austur-Grænlands í ljósi þess að hafsvæðið þar á milli er orðið íslaust langan tíma af árinu og opnast þannig nýir ferðamöguleikar. Meðal ráðstefnugesta verða samgönguráðherrar Íslands og Grænlands og fulltrúar ýmissa ferðaþjónustusamtaka.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×