Innlent

Stal bíl þriggja ferðakvenna

Ölvaður maður, sem ekki átti fyrir leigubíl og var á gangi eftir Sæbrautinni í nótt, taldi sig hafa verið bænheyrðan þegar hann gekk fram á mannlausan bíl í gangi við listaverkið Sólfarið, sté upp í hann og ók á brott. Þremur erlendum ferðakonum, sem höfðu numið staðar við Sólfarið til að njóta þar veðurblíðunnar, var hinsvegar illa brugðið enda var allur farangur þeirra í bílnum þar sem þær áttu að fara í flug í morgun. Þær leituðu því aðstoðar lögreglunnar. Leit hófst og eftir klukkustund bar hún þann árangur að maður, bíll og farangur fundust og endaði allt vel nema fyrir bílþjófnum. Hann gistir fangageymslur, en konurnar náðu morgunfluginu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×