Innlent

Aðgangur barna að klámefni eykst

Aðgangur barna að ýmis konar klámefni eykst stöðugt og veldur áhyggjum víða. Starfsmenn Barnahúss sjá skýra tengingu á milli þess og fjölgunar tilfella þar sem grunur leikur á að ósakhæf börn beiti önnur börn kynferðislegu ofbeldi. Á milli 20 og 30 % könnunarviðtala hjá Barnahúsi eru vegna gruns um að ósakhæf börn, það er undir fimmtán ára aldrei, áreiti eða beiti önnur börn kynferðislegu ofbeldi. Oft getur reynst erfitt að greina á milli kynferðislegs leiks sem talinn er eðlilegur hluti þroska og óeðlilegrar hegðunar. Ragna B. Guðbrandsdóttir, félagsráðgjafi í Barnahúsi segir að miðað sé við að í leik sé aldursmunur á börnunum ekki meiri en fjögur ár og að engar hótanir eigi sér stað. Annar aðilinn má ekki hóta eða þröngva hinum í leik. Eins er ekki eðlilegt að börnin noti líkamlegt ofbeldi eða séu með kynferðishegðun sem þau ættu ekki að þekkja sökum aldurs og þroska. Ragna segir stóran hluta mála snúast um alvarleg brot af því tagi sem hún nefndi. Afar mikilvægt sé að koma í veg fyrir að börn hafi aðgang að klámefni sem mikið framboð sé af. Í mörgum tilfellum sé bein tenging á milli þess klámefnis sem börnin komist í og athafna. Hún segir nauðsynlegt að börn sem eru gerendur fái hjálp. Rannsóknir sýni að fullorðnir gerendur hafi í 60 % tilvika byrjað feril sinn fyrir 18 ára aldur. Það sé því mikilvægt að þessi börn fái réttu upplýsingarnar, fræðslu og hjálp til að leiðrétta þessa hegðun.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×