Innlent

Dýrðarveður á Suðvesturhorninu

Dýrðarveður hefur verið á Suðvesturhorninu þennan lengsta dag ársins. Sumarsólstöður eru í dag, og munu nótt og dagur renna saman í eitt á norðanverðu landinu. Hitinn á höfuðborgarsvæðinu fór víða í tuttugu gráður. Færa má ágætis rök fyrir því í ljósi veðursögu Íslands að dagurinn hafi verið of góður til eyða innandyra í vinnu. Þeir sem áttu þess kost fóru út að vinna en aðrir slepptu því hreinlega alfarið. Kapparnir í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni útvörpuðu til að mynda frá Austurvelli þar sem margt var um manninn.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×