Innlent

Lítill áhugi meðal ungmenna

Þeir sem fá að kjósa í fyrsta sinn í forsetakosningum að þessu sinni, vegna aldurs, eru 16,2 prósent kjósenda. Nokkur ungmenni voru spurð út í kosningarnar á förnum vegi en kosningarnar fara eins og flestir vita fram á laugardag. Lítill áhugi virtist vera meðal unga fólksins á komandi forsetakosningum. Mörg ungmennanna höfðu ekki hugmynd um hvenær kosningarnar yrðu haldnar og gátu allt eins ímyndað sér að þær færu fram í nóvember. Ekki voru allir með það á hreinu hverjir væru í framboði en töldu þó að Ástþór hugsaði um frið, Baldur ætlaði að láta embættið hverfa og að Ólafur ætlaði að vera í stríði við ríkisstjórnina.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×