Innlent

Sjúkir fluttir loftleiðis

Karlmaður, sem var einn á ferð, var fluttur á heilsugæslustöðina í Patreksfirði í nótt eftir að hann velti bíl sínum í Mikladal, skammt frá bænum. Eftir aðhlynningu var hann fluttur með sjúkarflugvél til Reykjavíkur og lagður inn á Landsspítalann, en mun þó ekki vera alvarlega slasaður. Þá var fárveik kona sótt inn í þórsmörk í nótt og flutt á Landsspítalann. Hestamaður slasaðist talsvert þegar hann féll af hestbaki á Vopnafjarðarheiði í gær og mat læknir ástand mannsins svo að ekki væri óhætt að flytja hann landveginn. Var þá kallað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem flutti manninn á Sjúkrahúsið á Akureyri og er talið að hann nái með tímanum fullum bata.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×