Innlent

Borgarstjóri landaði laxi

Þórólfur Árnason borgarstjóri landaði fyrsta laxinum úr Elliðaánum í gærmorgun, en borgarstjóri opnaði árnar að venju. Er þetta fyrsti lax Þórólfs úr Elliðaám og annar laxinn sem hann landar um ævina. Laxinn sem Þórólfur veiddi á maðk í Fossinum var grálúsug fjögurra punda hrygna sem hann landaði eftir snarpa viðureign klukkan hálf átta í gærmorgun. Þrír laxar voru komnir á land um hádegi í gær. Guðmundur Þóroddsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur, landaði 5,5 punda laxi í Teljarastreng og Helga Jónsdóttir borgarritari veiddi fimm punda lax í Ullarfossi. Bergur Steingrímsson, formaður Stangaveiðifélags Reykjavíkur, sagði veiðina fara vel af stað og að hann væri bjartsýnn fyrir sumarið. Sjö laxar voru gengnir í gegnum teljarann við rafstöðina í Elliðaárdal þegar veiðin hófst í gær.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×