Sport

Lakers talar við Tomjanovich

Forráðamenn Los Angeles Lakers hafa sett sig í samband við Rudy Tomjanovich, fyrrum þjálfara Houston Rockets, í þeirri von um að hann taki við þjálfun liðsins af Phil Jackson, sem lét af störfum á föstudag. "Ég get staðfest það að forráðamenn Lakers eru búnir að hafa samband við mig og ég er áhugasamur og mun eiga í frekari viðræðum við þá á næstu dögum." Tomjanovich er enn samningsbundinn Rockets þrátt fyrir að hafa hætt þjálfun liðsins fyrir einu ári síðan en þá þurfti hann að gangast undir aðgerð vegna krabbameins í blöðruhálskirtli. Hann hefur nú náð sér að fullu en hafði ekki í hyggju að snúa aftur í þjálfunina alveg á næstunni. Áhugi Lakers kveikti þó hjá honum neistann og hefur Tomjanovich fengið leyfi frá forráðamönnum Rockets til að ræða við forráðamenn Lakers. Tomjanovich leiddi Houston Rockets til tveggja NBA meistaratitla, árin 1994 og 1995, og eru það einu meistaratitlar félagsins hingað til. Tomjanovich var einnig nokkuð góður leikmaður og lék hann með Rockets og liðið komst einu sinni í lokaúrslitin, árið 1981, en þá beið Houston lægri hlut gegn Boston Celtics, 4-2. Annars er staðan hjá Lakers nokkuð óljós þessa stundina - liðið er í sárum eftir að hafa tapað óvænt fyrir Detroit Pistons í lokaúrslitunum. Shaquille O´Neal vill fara frá liðinu og þá er staða Kobe Bryant, innan vallar sem utan, á reiki en þó er brotthvarf Jacksons talið auka líkurnar á að hann verði áfram hjá Lakers en þeir voru víst litlir mátar undir það síðasta.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×