Innlent

Uppgangur á Fáskrúðsfirði

Fjölgun er á Fáskrúðsfirði og fasteignir eru farnar að seljast þar á ný. Þessi þróun er einkum rakin til jarðganga. Það hefur komið mörgum á óvart hversu sterk áhrif uppbyggingin á miðausturlandi virðist ætla að hafa á Fáskrúðsfirði en eftir samfellda fólksfækkun í nærri aldarfjórðung er nú allt í einu farið að bera á húsnæðisskorti. Íbúafjöldinn var í fyrra kominn niður fyrir 600 manns en á árunum fyrir 1980 bjuggu þar hátt í 900 manns. Nú hefur þróunin snúist við. „Auðvitað eru munnvikin miklu ofar en undanfarin ár. Fólki fjölgar, íbúðaverð hækkar og menn eru ánægðir að sjá þessa jákvæðu þróun,“ segir Steinþór Pétursson, sveitarstjóri Austurbyggðar. Yngra fólk sem ættað er úr Fáskrúðsfirði er að snúa heim, ýmist úr námi eða störfum annars staðar á landinu. Einnig er fólk úr öðrum landshlutum að flytja til staðarins og allir þurfa húsnæði. Steinþór segir húsnæði rokseljast og að biðlistar séu eftir leiguhúsnæði. Gerð jarðganganna milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar gegnir þarna lykilhlutverki en þegar þau verða opnuð eftir rúmt verður örstutt yfir á lóð væntanlegs álvers.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×