Innlent

Pílagrímsferðir til að skoða hvali

Erlendir ferðamenn eru farnir að koma í eins konar pílagrímsferðir hingað til lands til þess eins að fá að sjá steypireyð, stærsta dýr veraldar, og skynja nálægðina við skepnuna. Hörður Harðarson hvalaleiðsögumaður segir hafsvæðið úti fyrir Ólafsvík líklega besta svæði jarðar til þess að skoða steypireyð og veit um ferðskrifstofu á Englandi sem gerir sérstaklega út á slíkar ferðir til Íslands. Hægt er að horfa á stórfenglegar myndir af slíkum sjóleiðangri, sem fréttamaður og tökumaður Stöðvar 2 fóru í á dögunum, í VefTíVí-inu hér á síðunni.      



Fleiri fréttir

Sjá meira


×