Innlent

Metaðsókn

Á sjöunda hundrað umsóknir hafa borist í Tækniháskóla Íslands. Aldrei hafa fleiri sótt um í skólann en um 800 nemendur stunduðu þar nám síðasta vetur. Eingöngu er hægt að innrita um 200 nemendur í háskólann og því standa stjórnendur frammi fyrir að hafna stórum hluta umsóknanna. Eftirspurn í sumar námsbrautir háskólans hefur aukist um 500 prósent. Stjórnendur skólans telja helstu ástæðu mikilla vinsælda tæknináms vera góðar atvinnuhorfur tæknimenntaðra, segir í fréttatilkynningu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×