Erill hjá lögreglunni 20. júní 2004 00:01
Mikill erill hefur verið hjá lögreglu víða um land um helgina og jafnvel frá því fyrir sautjánda júní. Á Akureyri hefur verið í ýmsu að snúast, ölvun, ölvunarakstur og pústrar, án þess þó að stórslys hafi hlotist af. Fjöldi ferðamanna er á tjaldstæði bæjarins og hefur lögreglan þurft að fara ítrekað þangað. Á Ísafirði hefur einnig verið erill en þangað komu ferðamenn snemma og eru margir. Tvær bílveltur urðu í umdæmi Selfosslögreglunnar. Laust fyrir klukkan sjö í gærkvöldi valt bíll í Þingvallasveit. Hann fór fimm veltur en ekki er talið að alvarleg slys hafi orðið á fólki og ekki heldur þegar bíll valt laust eftir klukkan sjö á Kjalvegi. Mikið álag hefur verið á lögreglunni á Selfossi, enda umdæmið víðfemt og hafa lögreglumenn þurft að fara á fjölda tjaldstæða sem dreifð eru um umdæmið til að hafa afskipti af ölvuðu fólki. Þrjú ungmenni, tveir piltar og ein stúlka, gista nú fangageymslur lögreglunnar í Reykjavík eftir að þau voru handtekinn við dælustöðina í Skeljanesi. Fjögur ungmenni höfðu klippt gat á girðingu og voru með bensínbrúsa með sér þegar lögreglan kom á vettvang. Sökum aldurs var eitt ungmennanna flutt heim til sín en hin bíða yfirheyrslu. Þau hafa komið við sögu lögreglunnar áður. Talið er að þau hafi verið að stela bensíni og hugsanlega einhverju fleiru.
Fréttir Innlent Mest lesið Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Innlent „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Innlent Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Innlent Fleiri fréttir Myndskeið af rallýslysi, sjálfstæð Úkraína og brennan á Bergþórshvoli Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Vestfirðingar fagna í kvöld: „Þetta er bara mjög stórt“ Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Hlaupið aftur í rénun eftir vöxt í nótt Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Hver verður Íslandsmeistari í hrútaþukli? Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Akstursíþróttasamfélagið harmi slegið, unglingadrykkja á Menningarnótt og hrútaþukl Evrópusambandið, menntamál, stýrivextir og Gasa í Sprengisandi „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Algjört hrun í fálkastofninum Þétting byggðar hafi ekki slegið í gegn Jökulhlaupið í hægum vexti Nýi brennsluofn göngugarpsins mættur á Sólheima Grunur um brot gegn fleiri börnum Grunur um brot gegn öðru barni, alvarlegt slys og tíðindi á Menningarnótt Alvarlegt slys á starfsmönnum á Íslandsmeistarmóti í rallycross Gríðarlegt magn myndefnis til skoðunar hjá lögreglu Leiðist „linnulaust væl” Íslendinga yfir réttu málfari Eigandi Sante segir málið gjörunnið: „Frelsið sigrar alltaf að lokum” 99 ára gömul tombóla á Borg í Grímsnesi og engin núll Vínsali býst við ákæru, kúnnalisti Epstein og stemming í bænum Reiðhjólabændur með vaktað hjólastæði í Traðarkoti til miðnættis Níu sviptir leyfi meðan á annað hundrað kvartana hafa borist „Beint frá býli dagurinn“ býður landsmönnum í heimsókn Sjá meira